Velkomin
á vef Tónskólans DoReMí
Skólaslit Tónskólans DoReMi verður fimmtudaginn 20. mai kl. 18.30 í Neskirkju.
Ætlast er til að allir nemendur skólans mæti þar og veiti m.a.
prófskírteinum viðtöku.
Allir velkomnir.

Tónskólinn Do Re Mi óskar þér og þínum gleðilegs sumars með þökk fyrir samstarfið á liðinni önn.
Eldri fréttir
Vortónleikar Tónskólans DoReMi eru sem hér segir;
fimmtudaginn 6. mai kl.
18.00 og laugardaginn 8. mai kl. 10.00 og 11.30.
Allir velkomnir.
Þriðjudaginn 16. mars verða haldnir tónleikar í Norræna húsinu fyrir lengra komna nemendur skólans.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og er boðið
upp á létta hressingu í hlé.
Efnisskráin samanstendur af verkum eftir
Chopin, Mozart, Granados, Piazzolla, Atla Heimi Sveinsson og fleiri.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill á meðan húsrúm leyfir.
09 mars 2010 - Skólastjóri
Þematónleikar í tilefni af degi tónlistarskólanna.
Í tilefni af degi tónlistarskólanna verða haldnir tónleikar í Neskirkju föstudaginn 26. febrúar
og hefjast þeir kl. 18:00. Það er orðin hefð í
tónskólanum að hafa miðsvetrartónleika í tilefni
af degi
tónlistarskólanna. Að þessu sinni er þemað “Danstónlist í gegnum
aldirnar”.
Atriðin eru eingöngu samspilsatriði og efnisskráin mjög
fjölbreytt.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir.
02 feb 2010 - Skólastjóri
p.s. fyrsti kennsludagur nýs árs er mánudagurinn 4. janúar.
Jólatónleikar Tónskólans Do Re Mí, er laugardaginn 12. desember
kl. 10:00, kl. 11:30 og kl. 13:30 í Neskirkju.
Sú skemmtilega hefð hefur skapast að foreldrafélagið hefur staðið fyrir kaffisölu að loknum hverjum tónleikum til styrktar hljóðfærasjóði skólans. Þar eiga börnin ásamt foreldrum, ömmum og öfum, og öðrum tryggum áheyrendum notalega stund saman áður en haldið er út í jólaamstrið.
Verð kr. 500 fyrir fullorðna, frítt fyrir börn undir 12 ára og nemendur Do Re Mi.
Kaffihlaðborðið hefur um árabil verið megintekjulind hljóðfærasjóðs skólans og gert skólanum kleyft að kaupa hljóðfæri í barnastærðum s.s. fiðlur, selló, harmonikur og hörpur.
|