Forsíða
 

Dagatal Tónskólans Do Re Mí··>
Starfsárið 2009 - 2010 (.pdf)

Námsskrá Tónskólans Do Re Mí ··>

Fyrirspurnir
Sendið okkur línu og við svörum póstinum við fyrsta tækifæri ··>

SPURNINGAR OG SVÖR
Algengar spurningar sem fljótlegt er að fá svör við hér ··>

Frístundakort

Rafræn námsumsókn í
Tónskólann Do Re Mí ··>

• Tónskólinn Do Re Mi
• Frostaskjóli 2
• 107 Reykjavík
• Sími & Fax: 551 4900
• Kennarastofa: 551 4904
• Netfang: doremi(a)simnet.is

:· Námsstilhögun

Almennt um hljóðfæranám

Þegar nemandinn hefur valið hljóðfæri þarf hann að tileinka sér ákveðin vinnubrögð, sem geta verið mismunandi eftir hljóðfærum. Öllum er það þó sameiginlegt, að eigi einhver árangur að nást, krefst það auk áhuga, daglegra æfinga og reglubundinnar ástundunar. Hér skiptir áhugi og aðhald foreldra miklu máli og æskilegt er að foreldrar gefi sér tíma til að fylgjast með æfingum barnsins. Rétt æfing skapar meistarann og ástundun skapar ánægjuna.

Nemandinn þarf að eiga eða hafa aðgang að hljóðfæri og gera má ráð fyrir kostnaði vegna kaupa á nótnabókum og fleiru tengdu viðkomandi hljóðfæri. Skólinn á nokkur hljóðfæri til útleigu og rennur leigan í hljóðfærasjóð skólans.


Forskóli 1 (6-7 ára).
Nemendur eru innritaðir 6 ára í forskóla 1. Kennt er tvisvar sinnum í viku og lengd kennslustunda er 40 mínútur miðað við 6 nemendur í hóp. Forskólakennsla fer fram eftir skólatíma í Grunnskólunum. Tilgangur með Forskóla 1 er að leyfa börnum að kynnast tónlistarnámi með virkri þáttöku og undirbúa börnin undir hljóðfæranám, kynna þeim nótnalestur, tónheyrn, hrynþjálfun og söng og hljóðfæraleik á fimm strengja kantele (finnskt þjóðarhljóðfæri). Þannig er lagður góður grunnur fyrir frekara hljóðfæranám og börnin fá tækifæri til að finna hvort hljóðfæranám er eitthvað sem þau vilja eða ekki. Þeir nemendur sem sýna framúrskarandi hæfileika og árangur geta strax eftir Forskóla 1 hafið hljóðfæranám.

Forskóli 2 (7-8 ára).
Forskóli 2 er framhald af Forskóla 1. Kennt er tvisvar sinnum í viku og fer lengd kennslustunda eftir stærð hópa; 40-50 mínútur miðað við 7-9 nemendur í hóp. Forskólakennsla fer fram eftir skólatíma í Grunnskólunum. Þar er megináhersla lögð á blokkflautu og ásláttarhljóðfæri og áframhald í tónfræðagreinum.

Nemendur úr forskóla 2. ganga alla jafna fyrir í þau pláss sem losna í hljóðfæranáminu í Tónskólanum Do Re Mi og einnig í Skólahljómsveit Vesturbæjar. Umsögn og mat forskólakennarans liggur til grundvallar því hverjum er boðið pláss í hljóðfæranámið.

Forskóli 3 (8-9 ára).

Þeir nemendur sem komast ekki í hljóðfæranám eftir Forskóla 2 býðst að sækja Forskóla 3. Kennslan fer fram eftir skólatíma í Grunnskólunum og/eða í húsnæði Tónskólans Do Re Mi. Þar er kennt í minni hópum (4-6). Í Forskóla 3 fer fram frekari undirbúningur fyrir hljóðfæranám.

 


Að velja sér hljóðfæri
Að forskólanámi loknu getur nemandi valið milli þeirra hljóðfæra sem eru í boði í Tónskólanum Do Re Mi eða í Skólahljómsveit Vesturbæjar. Skólinn býður forskólanemendum upp á hljóðfærakynningu á vorönn, til að auðvelda þeim valið. Þar geta nemendur ásamt foreldrum fengið að skoða og prófa ýmis hljóðfæri sem í boði eru og fengið upplýsingar frá viðkomandi kennara um hljóðfæranámið. Hljóðfæraval er með þeim fyrirvara að pláss losni á viðkomandi hljóðfæri, að nemandi hafi sýnt tilskilinn árangur/áhuga og bjóðist pláss.

Hljóðfæranám
Hljóðfæratímar eru yfirleitt einkatímar tvisvar sinnum í viku 30 mínútur í senn. Fyrstu tvö árin er þó gert ráð fyrir að nemendur séu einnig í samkennslu.

Tónfræðigreinar
Hljóðfæranemendur fá 50 mínútna hóptíma í tónheyrn og tónfræði einu sinni í viku.

Samspil:
Nemendur eiga kost á að leika í hinum ýmsu samspilshópum svo sem strengjasveit, gítarsveit, hljómsveit og minni kammerhópum.

 
Tónskólinn Do Re Mi býður upp á kennslu á eftirtalin hljóðfæri:
FORNÁM I
FORNÁM II

FIÐLA
SELLÓ
GÍTAR
HARMONIKA

PÍANÓ
ORGEL
KONTRABASSI
RAFBASSI
ÞVERFLAUTA
ALTFLAUTA
Tónskólinn Do Re Mí • Frostaskjóli 2 • 107 Reykjavík • Sími & Fax: 551 4900 • Netfang: doremi(a)simnet.is