Forsíða
 

Dagatal Tónskólans Do Re Mí··>
Starfsárið 2009 - 2010 (.pdf)

Námsskrá Tónskólans Do Re Mí ··>

Fyrirspurnir
Sendið okkur línu og við svörum póstinum við fyrsta tækifæri ··>

SPURNINGAR OG SVÖR
Algengar spurningar sem fljótlegt er að fá svör við hér ··>

Frístundakort

Rafræn námsumsókn í
Tónskólann Do Re Mí ··>

• Tónskólinn Do Re Mi
• Frostaskjóli 2
• 107 Reykjavík
• Sími & Fax: 551 4900
• Kennarastofa: 551 4904
• Netfang: doremi(a)simnet.is

:· Spurningar og svör

Nýtt skráningarkerfi Tónlistarskólans Do Re Mí.
Reykjavíkurborg sett fram nýtt allsherjar innritunarkerfi fyrir tónlistarskólanna í Reykjavík Þar er hægt að sækja um nám í tónlistarskóla með rafrænum hætti í miðlægu innritunarkerfi Reykjavíkurborgar.

Hér má lesa leiðbeiningar um rafræna RVK skráningu (pdf skjal) >>

Hve oft er kennt í viku?

FORSKÓLAKENNSLA: Tvisvar í viku, 40-50 mínútur í senn.

HLJÓÐFÆARAKENNSLA:

1) SAMKENNSLA : 8 ára nemendum sem eru á fyrsta ári í hljóðfæranámi er kennt saman (2 eða fleiri í hóp) tvisvar í vikur, hálftíma í senn.

2) SAMKENNSLA OG EINKAKENNSLA: 9 ára nemendum á öðru ári er kennt einn einkatíma og einn samspilstíma í viku, hálftíma í hvort skipti.

3) EINKAKENNSLA: 10 ára nemendum á þriðja ári er kennt í einkatímum, 2svar hálftíma.

Frá fyrsta eða öðru ári fá nemendur kennslu í tónfræðigreinum. Auk þess gefst nemendum kostur á að taka þátt í samspili fyrir vor- og jólatónleika.

Hver eru skólagjöldin?
Skólagjöldin skólaárið 2008-2009 eru: FORSKÓLANÁM: 51.130.

HLJÓÐFÆRANÁM: 1) SAMKENNSLA: 73.930, 2) SAMKENNSLA OG EINKAKENNSLA: 80.830 og 3) EINKAKENNSLA: 89.820.

Er veittur systkina- eða staðgreiðsluafsláttur?
Veittur er 15% afsláttur fyrir 2. barn og 20% afsláttur fyrir 3. barn.

Leigið þið út hljóðfæri og hvað kostar það?
Skólinn leigir út fiðlur, selló, gítara, harmonikur, hörpur og þverflautur. Leiguverð yfir árið er 6.000 til 13.000 eftir hljóðfærum.

Hvenær geta börnin byrjað að læra á hljóðfæri?
Börn geta hæglega byrjað 8 ára að læra á hljóðfæri.

Eru biðlistar?
Í dag eru biðlistar á öll hljóðfæri, nema á selló. Biðlistinn á píanó og gítar er lengri en t.d. fiðlubiðlistinn.

Hvar er kennt?
Forskólakennslan fer fram í grunnskólum Vesturbæjar en hljóðfærakennslan á annarri hæð í KR heimilinu Frostaskjóli 2 og í sumum tilfellum í grunnskólunum.

Tónskólinn Do Re Mi býður upp á kennslu á eftirtalin hljóðfæri:
FORNÁM I
FORNÁM II

FIÐLA
SELLÓ
GÍTAR
HARMONIKA

PÍANÓ
ORGEL
KONTRABASSI
RAFBASSI
ÞVERFLAUTA
ALTFLAUTA
Tónskólinn Do Re Mí • Frostaskjóli 2 • 107 Reykjavík • Sími & Fax: 551 4900 • Netfang: doremi(a)simnet.is